Episodes

Tuesday Apr 25, 2023
#10: Börkur Gunnarsson rektor Kvikmyndaskóla Íslands
Tuesday Apr 25, 2023
Tuesday Apr 25, 2023
Kvikmyndaskóli Íslands hefur menntað hundruði kvikmyndagerðarfólks og eru meirihlutinn að störfum í íslenskum kvikmynda- og sjónvarpsiðnaði. Skólinn átti þrjátíu ára afmæli í fyrrahaust og af því tilefni ræddi ég við Börk Gunnarsson leikstjóra og handritshöfund sem verið hefur rektor skólans þennan veturinn. Við spjölluðum um framlag skólans til íslenskrar kvikmyndagerðar, hvaðan nemendurnir koma og væntingar þeirra, áskoranirnar í rekstri skólans og reynslu Barkar af rektorsstarfinu.

Wednesday Jan 11, 2023
#09: Jörundur Rafn Arnarson: Það sem hæst ber í heimi myndbrella
Wednesday Jan 11, 2023
Wednesday Jan 11, 2023
Jörundur Rafn Arnarson er myndbrellumeistari eða visual effects supervisor og hefur sem slíkur komið að tugum innlendra og erlendra verkefna síðustu tuttugu árin. Ásgrímur Sverrisson ræddi við hann um myndbrellufagið og það sem er efst á baugi í þeim heimi, sem að sjálfsögðu er óaðskiljanlegur hluti kvikmyndagerðar.

Wednesday Dec 28, 2022
#08: Uppgjör 2022 með Kristínu Andreu Þórðardóttur og Ragnari Bragasyni
Wednesday Dec 28, 2022
Wednesday Dec 28, 2022
Umræða um það helsta sem íslenski kvikmyndabransinn gekk í gegnum á árinu 2022 með Kristínu Andreu Þórðardóttur framleiðanda, leikstjóra og stjórnanda Skjaldborgarhátíðarinnar og Ragnari Bragasyni leikstjóra, handritshöfundi og formanni Samtaka kvikmyndaleikstjóra. Umræðuefni: Aðsókn og áhorf, bíó og sjónvarp, Bíó Paradís, hækkun endurgreiðslunnar i 35%, Kvikmyndastefnan og niðurskurðurinn til Kvikmyndasjóðs, Kvikmyndalistadeild Listaháskólans, Evrópsku kvikmyndaverðlaunin og loks horfurnar framundan.

Thursday Mar 24, 2022
#07: Fjórar bíómyndir á tveimur árum (Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson)
Thursday Mar 24, 2022
Thursday Mar 24, 2022
Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson hafa á síðustu tveimur árum (2020-2022) sent frá sér fjórar bíómyndir sem allar hafa notið velgengni í kvikmyndahúsum þrátt fyrir heimsfaraldur. Þetta eru Síðasta veiðiferðin, Amma Hófí, Saumaklúbburinn og nú Allra síðasta veiðiferðin. Ég ræddi við þá um reynsluna af þessari þeysireið og hvert skal haldið héðan.

Friday Feb 25, 2022
#06: Kvikmyndadeild LHÍ í startholunum - með Steven Meyers
Friday Feb 25, 2022
Friday Feb 25, 2022
Kvikmyndadeild Listaháskólans tekur til starfa í haust. Ásgrímur Sverrisson ræðir við Steven Meyers deildarstjóra um uppbyggingu námsins og hvernig hann sér þetta allt fyrir sér.

Wednesday Feb 16, 2022
Wednesday Feb 16, 2022
Friðrik Erlingsson og Ásgrímur Sverrisson ræða um sjöunda og áttunda þátt Verbúðarinnar út frá sjónarhóli handritshöfundarins. Þetta er lokaþáttur yfirferðar um þessa þáttaröð (alls 4 þættir).

Wednesday Feb 02, 2022
#04: Fimmti og sjötti þáttur Verbúðarinnar - með Friðriki Erlingssyni
Wednesday Feb 02, 2022
Wednesday Feb 02, 2022
Friðrik Erlingsson og Ásgrímur Sverrisson ræða um fimmta og sjötta þátt Verbúðarinnar út frá sjónarhóli handritshöfundarins.

Monday Jan 17, 2022
#03: Þriðji og fjórði þáttur Verbúðarinnar - með Friðriki Erlingssyni
Monday Jan 17, 2022
Monday Jan 17, 2022
Friðrik Erlingsson og Ásgrímur Sverrisson ræða um þriðja og fjórða þátt Verbúðarinnar út frá sjónarhóli handritshöfundarins.

Klapptréð
Hlaðvarp um strauma og stefnur í hinum síbreytilega heimi kvikmynda og sjónvarps með sérstakri áherslu á Ísland.
Hluti af vefmiðlinum Klapptré (www.klapptre.is).